Vísindakistan
Vísindakistan snýst um að auka aðgengi leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva að útivistarsvæðum í Reykjavík til að nota markvisst í starfi með börnum og unglingum. Það felst meðal annars í því að hafa aðgang að skjóli, salernisaðstöðu, hugmyndum að verkefnum og tækjum og tólum sem hægt er að nota í útinámi.
Til að nota aðstöðuna er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram og fá staðfestingu á móttöku skráningar. Upplýsingar um aðgengi að vísindakistu eru sendar í tölvupósti. Til að skrá þig skaltu nota viðeigandi skráningarhnapp hér fyrir neðan.
Nánari upplýsingar um aðstöðu má finna á http://muu.reykjavik.is/visindakistan/
VÍSINDAKISTAN ER STAÐSETT Á EFTIRFARANDI STÖÐUM
- Elliðaárdal (skíðaskálanum við skíðabrekkuna við Rafstöðvaveg) Athugaðu! Áður en þú kemur, þarftu að hafa fengið aðgangskóða að lyklaboxinu fyrir lyftuhúsið.
- (væntanleg) – Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
- (væntanleg) – Öskjuhlíð
- (væntanleg) – Hljómskálagarður
Deila
Skipuleggjandi:
Miðstöð útivistar og útináms
Staðsetning:
Grafarvogur
Efnisflokkur:
Leikir og útivist
Tímabil:
Janúar
- Desember
Aldur:
2ja ára
- 18 ára