Úti er ævintýri
Úti er ævintýri er dagskrá fyrir grunnskóla þar sem starfsmaður MÚÚ tekur á móti hóp í fyrirfram ákveðið verkefni. Dagskrá og kennslu er stýrt af starfsmanni MÚÚ, en kennari aðstoðar eftir þörfum. Markmið Úti er ævintýri er hjálpa kennurum að taka fyrstu skrefin út úr skólastofunni. Vanir útikennslu kennarar eru að sjálfssögðu líka velkomnir. Dagskráin fer fram í Lundinum og á útivistarsvæðinu við Gufunesbæ.
Tekið er á móti hópum:
- Mánudaga frá kl. 10:00 – 12:00
- Miðvikudaga frá kl. 10:00 – 12:00
Könnunarleiðangur (2019-2020)
Skemmtilegt verkefni þar sem nemendur fara út til þess að kanna heiminn í kringum sig á eigin forsendum. Vettvangur námsins mun vera náttúran og umhverfið við Frístundamiðstöðina Gufunesbæ. Nemendum gefst kostur á því að varpa fram spurningum af eigin frumkvæði, leita svara og síðan deila niðurstöðum sínum með bekknum.
Verkefnið er ætlað nemendum á miðstigi og unglingastigi í grunnskóla. Öll gögn eru á staðnum.
Mikilvægt er að bæði nemendur og kennari séu vel klædd til útiveru :)
Deila