Skip to main content

Upplifunarferð um sýninguna Vatnið í náttúru Íslands

Náttúruminjasafn Íslands býður leikskólabörnum í spennandi upplifunarferð um sýninguna Vatnið í náttúru Íslands. Þar fá þau að kynnast mismunandi birtingarmyndum vatns, meðal annars með því að hlusta, snerta, sulla og skoða lífverur sem búa í vatninu.

Heimsóknin tekur um 45 mínútur og miðað er við að í hópnum séu ekki fleiri en 20 nemendur.

Skráning fyrir heimsóknir á sýninguna Vatnið í náttúru Íslands á 2. hæð Perlunnar fer fram á heimasíðu Náttúruminjasafns Íslands.

Fræðsla er ókeypis fyrir skólahópa.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu safnsins og hjá safnkennurum á netfanginu kennsla@nmsi.is og í síma 5771800.

Skipuleggjandi:
Náttúruminjasafn Íslands
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Náttúra og dýr
Tímabil:
Janúar
  - Desember
Aldur:
3ja ára
  - 5 ára