Sofnað að hausti - vaknað að vori
Sofnað að hausti – vaknað að vori:
Elstu deildum leikskóla býðst að koma í haustheimsókn í Grasagarð Reykjavíkur 20. september til 12. október 2021 og sömu hópum gefst svo kostur á að heimsækja garðinn aftur í vorheimsókn í maí/júní 2022.
Heimsóknin sem er ætluð útskriftarárgöngum leikskólanna nefnist „Sofnað að hausti – vaknað að vori“ og munu börnin fá fræðslu um hvað gerist í gróðrinum að hausti og vetri og hjálpa til við að planta laukum sem svo verða í blóma í vorheimsókninni.
Fræðslan tekur um 30-40 mínútur og er tilvalið að koma með nesti. Ef veður er ekki hagstætt er nestisaðstaða innanhúss í boði.
Hægt er að bóka þátttöku í síma 411-8650.
Deila
Skipuleggjandi:
Grasagarður Reykjavíkur
Staðsetning:
Laugardalur, Háaleiti og Bústaðir
Efnisflokkur:
Leikir og útivist
Náttúra og dýr
Tímabil:
Maí
- Október
Aldur:
4ra ára
- 6 ára