Skrítið og skondið á Sjóminjasafninu | 8.-10. bekkur
Sjóminjasafn | Borgarsögusafn Reykjavíkur
8.-10. bekkur
Staðreyndaleikur um aðalsýningu safnsins Fiskur&fólk og Kahoot! spurningakeppni í skólanum.
Kunnu sjómenn alltaf að synda í gamla daga? Hvaða gamla húsráð var við marglyttustungu?
Í heimsókninni er farið í skemmtilegan leik um aðalsýningu safnsins Fiskur&fólk. Þar eru lesnar staðreyndir um ýmislegt skrítið og skondið tengt hafinu og íslenskri sjómennsku.
Þegar komið er aftur í skólann er farið í Kahoot! spurningakeppni upp úr umfjöllunarefni dagsins.
Miðað er við að hópar séu ekki stærri en sem nemur einum bekk eða um 25 nemendur.
Tekur um 45 - 60 mínútur.
Einungis í boði frá 15. maí til 7.júní.
Bókanir og nánari upplýsingar á borgarsogusafn.is/safnfraedsla eða í gegnum safnfraedsla@reykjavik.is
Deila