Skip to main content

Skíðað á skólatíma

Skíðað skólatíma var tilraunaverkefni 2018-2019 á skóla- og frístundasviði í umsjón Miðstöðvar útivistar og útináms, Gufunesbæ. Verkefnið var samstarfsverkefni MÚÚ, Skíðasvæðanna í borginni og tveggja grunnskóla í Reykjavík.

Markmið verkefnisins sem var framkvæmt var að:

  • Athuga möguleikana á því hvernig hægt væri að gefa nemendum í 2.bekk tækifæri til að prófa skíði.
  • Meta kosti og galla framkvæmdarinnar áður en svipað tilboð myndi standa öllum skólum í Reykjavík til boða.
  • Fá reynslu í móttöku skólahópa á skíðasvæðin í borginni með áherslu á þjónustu við byrjendur.
  • Fá endurgjöf frá nemendum, kennurum og foreldrum.

Gert er ráð fyrir að verkefnið verði endurtekið 2019-2020. Nánari upplýsingar um það koma síðar og mun upplýsingapóstur verða sendur til skólastjóra þegar nær dregur.

Skipuleggjandi:
Miðstöð útivistar og útináms
Staðsetning:
Grafarvogur
Efnisflokkur:
Leikir og útivist
Tímabil:
Nóvember
Aldur:
7 ára