Neyzlan | 8.-10. bekkur
Árbæjarsafn | Borgarsögusafn Reykjavíkur
8. - 10. bekkur
Ókeypis rúta fyrir grunnskóla í Reykjavík.
Sýningin Neyzlan varpar ljósi á örar breytingar á neysluháttum á 20. öld. Markmið heimsóknarinnar er að beina sjónum að eigin neyslu, sóun og áhrifum mannsins á umhverfið.
Nemendur vinna hópverkefni sem eflir skapandi og gagnrýna hugsun í afslöppuðu umhverfi.
Vinsamlegast athugið að gert er ráð fyrir eftirfylgni þar sem áætlað er að nemendur kynni verkefni sín úr heimsókninni í skólanum og er því mælt með að kennarar taki frá eina kennslustund í það.
Miðað er við að hópar séu ekki stærri en sem nemur einum bekk eða um 25 nemendur.
Tekur um 45 - 60 mínútur.
Bókanir og nánari upplýsingar á borgarsogusafn.is/safnfraedsla eða í gegnum safnfraedsla@reykjavik.is
Deila