Líf í fersku vatni | Vatnið í náttúru Íslands
Í ferskvatni býr urmull skemmtilegra lífvera sem áhugavert er að fræðast um. Sumar eiga heima á botni stöðuvatna og straumvatna og aðrar eru svo litlar að við sjáum þær ekki með berum augum. Við fjöllum um lífsferla þeirra og atferli.
Heimsóknin tekur um klukkustund og miðað er við að hópar séu ekki stærri en sem nemur einum bekk, eða um 25 nemendur.
Skráning fyrir heimsóknir á sýninguna Vatnið í náttúru Íslands á 2. hæð Perlunnar fer fram á heimasíðu Náttúruminjasafns Íslands.
Fræðsla er ókeypis fyrir skólahópa.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu safnsins og hjá safnkennurum á netfanginu kennsla@nmsi.is og í síma 5771800.
Deila
Skipuleggjandi:
Náttúruminjasafn Íslands
Staðsetning:
Miðborg og Hlíðar
Efnisflokkur:
Náttúra og dýr
Tímabil:
Janúar
- Desember
Aldur:
6 ára
- 9 ára