Leikjafjör | Frístund
Árbæjarsafn | Borgarsögusafn Reykjavíkur
frístund
Leikjafjör
Byrjað er á léttri leiðsögn um safnsvæðið áður en krakkarnir fá að kynnast gömlum leikjum sem íslensk börn léku sér í á árum áður.
Notast er við leikjahefti safnsins svo að leiðbeinendur geti stýrt krökkunum í hinum ýmsu leikjum sem vinsælir voru á 20. öldinni og margir hverjir þekkja enn þann dag í dag.
Fjölbreytt nestisaðstaða er á svæðinu auk þess sem hægt er að grilla í lundinum á vestanverðu safnsvæðinu.
Vinsamlegast athugið að gert er ráð fyrir að dagskráin taki um 45 mínútum en frístundahópar mega vera að hámarki í 2 klst. á safnsvæðinu.
Gert er ráð fyrir að hópar séu ekki stærri en um 30 börn.
Í boði frá 8. júní til 18. ágúst.
Bókanir og nánari upplýsingar á borgarsogusafn.is/safnfraedsla eða í gegnum safnfraedsla@reykjavik.is
Deila