Gamli tíminn | 1.-2. bekkur
Árbæjarsafn | Borgarsögusafn Reykjavíkur
1. - 2. bekkur
Könnunarleiðangur um fortíðina.
Hvernig lifði og bjó fólkið í gamla daga? Farið er í könnunarleiðangur í torfbæinn Árbæ. Nemendur fá verkefni þar sem þeir eiga að finna ákveðna hluti og rými. Síðan er haldið í fræðsluhúsið Líkn þar sem sjónum er beint að hverri árstíð fyrir sig.
Fyrir heimsóknina getur verið skemmtilegt að horfa á umfjöllun safnsins um smjörstrokkun í gamla daga hér en fleiri handverksmyndbönd eru að finna undir handverksmyndbönd á heimasíðu safnsins.
Miðað er við að hópar séu ekki stærri en sem nemur einum bekk eða um 25 nemendur.
Tekur um 45 - 60 mínútur.
Árið 2021
4. janúar - 21. janúar: Ljós og myrkur
22. janúar - 20. febrúar: Þorrinn
21. febrúar - 31. mars: Góa
1. apríl - 10. júní: Vorið - sauðburður, leggur og skel
23. ágúst - 31. október: Uppskera, réttir og sláturtíð
1. nóvember - 1. desember: Ljós og myrkur
Bókanir og nánari upplýsingar á borgarsogusafn.is/safnfraedsla eða í gegnum safnfraedsla@reykjavik.is
Deila