Skip to main content

Dans fyrir Alla- dansfræðsludagar

Í vetur býður Dansgarðurinn, í samstarfi við Íslenska Dansflokkinn, upp á dansfræðslu-dagskrá fyrir nemendur í 6. bekk á höfuðborgarsvæðinu.

Dans fyrir alla 2019-2021 er fræðsludagskrá í þremur liðum. Nemendur fá meðal annars fræðslu um skapandi aðferðir, dans og sviðslistir, og öðlast góða innsýn inn í sköpunar- og greiningaferli þessara listgreina. 

Dans fyrir alla er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og er þátttaka skóla í verkefninu því ókeypis!

Kennarar geta skráð nemendur sína í Dans fyrir alla, en dagskrá verkefnisins er eftirfarandi:

Október - nóvember

Nemendur mæta í danskynningu og vinnustofu í stúdíó Klassíska listdansskólans (Grensásvegi 14). Hver vinnustofa er ætluð fyrir 25 nemendur. Tveir atvinnudansarar og danskennarar bjóða nemendur velkomna og leiða þau í gegnum vinnustöðvar þar sem þau fá að vinna að skapandi hugmyndavinnu, búa til dans/kóreógrafíu, dansa og loks æfa sig í að ræða um dans. Dagskráin byrjar kl. 9:30 og endar kl. 12:15, en kennarar geta óskað eftir aðlögun á dagskrá ef þess gerist þörf. Nemendur eiga að koma með nesti og ef óskað er eftir því þá getur hópurinn verið áfram í rýminu til að borða hádegismat sem þau taka með sér frá skólanum. 

Febrúar - mars

Kennarar verkefnisins mæta í skólana og halda 90 mínútna gjörningafræðslu þar sem nemendur fá að endurskapa sögulega gjörningar með spilinu: “Playing-up”.

Apríl-Maí

Nemendum er boðið á æfingu hjá Íslenska dansflokknum. Verkið og nánari dagsetningu verða tilkynnt siðar. 

Sjá kynningarmyndaband.

Hér getið þið skráð nemendur ykkar.

Dagsetningar vinnustofanna í haust eru í skráningaskjalinu. Heimsóknir í febrúar og mars verða skipulagðar í samkomulagi við hvern skóla og kennara. Athugið að ekki hægt er að skrá bekkinn fyrir einungis einn lið fræðsludagskrárinnar.

Ef þið eru með spurningar varðandi dagskrána eða skráninguna, þá vinsamlegast sendið okkur póst á dansgardurinn@gmail.com eða hringið í okkur í síma 843 0581.

www.dansgardurinn.com

Verkefnastjóri Dansgarðsins - Aude Busson - dansgardurinn@gmail.com - 843 0581

Skipuleggjandi:
Dansgarðurinn
Staðsetning:
Laugardalur, Háaleiti og Bústaðir
Efnisflokkur:
Listir
Tímabil:
Janúar
  - Nóvember
Aldur:
10 ára
  - 12 ára