Ævintýraeyjan Viðey | Leikskóli
Viðey | Borgarsögusafn Reykjavíkur
4 - 6 ára
Könnunarleiðangur um sögu, náttúru og listaverk eyjarinnar.
Í Viðey eru mörg útivistarsvæði, fjörur og listaverk. Eyjan er friðlýst svæði og hluti af heimsókninni er að læra um og að bera virðingu fyrir náttúrunni og gæta fyllsta öryggis.
Fræðsluhefti eru aðgengileg á vefsíðu safnsins og út í eyju til innblásturs og stuðnings við heimsóknina.
Bóka þarf heimsókn á vefsíðu safnsins og svo þarf að bóka viðeyjarferjuna hjá Eldingu á elding@elding.is
Siglt er út í eyju alla virka daga frá 15. maí til 31.ágúst. Skólahópar greiða í ferjuna skv. gjaldskrá Eldingar. Ekkert gjald er tekið fyrir 6 ára og yngri.
Nestis- og salernisaðstaða er á tveimur stöðum í eynni:
• Hesthúsið er nestisaðstaða sem er staðsett fyrir aftan Viðeyjarstofu. Þar er kolagrill sem gestum er frjálst að nota auk salernis og leiksvæðis skammt frá.
• Viðeyjarnaust er aðstaða fyrir stærri hópa ásamt kolagrilli og salernisaðstöðu. Viðeyjarnaust stendur við fjöru sem gaman er að skoða.
Bókanir og nánari upplýsingar á borgarsogusafn.is/safnfraedsla eða í gegnum safnfraedsla@reykjavik.is
Deila