Ævintýraeyjan Viðey | Grunnskóli
Viðey | Borgarsögusafn Reykjavíkur
5. - 7. bekkur
Saga Viðeyjar og náttúra skapa ríkulegan jarðveg til fræðslu í ólíkum námsgreinum. Kennarar ráða för í Viðey og safnið býður ekki upp á leiðsögn um eyjuna.
Við erum með sérhönnuð fræðsluhefti fyrir kennara miðstigs. Hægt er að nálgast fræðsluheftin rafrænt á vefsíðu safnsins en einnig eru eintök í Viðey.
Nestis- og salernisaðstaða er á tveimur stöðum í eynni:
• Hesthúsið er nestisaðstaða sem er staðsett fyrir aftan Viðeyjarstofu. Þar er kolagrill sem gestum er frjálst að nota auk salernis og leiksvæðis skammt frá.
• Viðeyjarnaust er aðstaða fyrir stærri hópa ásamt kolagrilli og salernisaðstöðu. Viðeyjarnaust stendur við fjöru sem gaman er að skoða.
Nauðsynlegt er að bóka jafnframt ferð með Viðeyjarferjunni fyrir heimsóknina. Sendið Eldingu póst á elding@elding.is
Bókanir og nánari upplýsingar á borgarsogusafn.is/safnfraedsla eða í gegnum safnfraedsla@reykjavik.is
Deila